Magapest hjá hundum og köttum

Höfundur

Dýralæknastofa Suðurnesja

Síðast uppfært

10. júní 2026

deildu þessari síðu

Uppköst og niðurgangur eru algeng einkenni hjá bæði hundum og köttum. Orsakir geta verið margar, þar á meðal:

  • Ójafnvægi í þarmabakteríuflóru
  • Maga- og þarmabólga
  • Veirusýkingar
  • Bakteríusýkingar
  • Sníkjudýrasýkingar

Í flestum tilfellum er hægt að meðhöndla einkennin með góðum árangri án þess að finna nákvæma orsök meltingartruflananna.

Hvað er hægt að gera heima?

Góðgerlar

Mælt er með að gefa góðgerla sem styðja við eðlilega þarmaflóru, til dæmis:

  • ProMax
  • Pro-Lac

Fasta

Gott er að fasta dýrið í 12–24 klukkustundir til að gefa meltingarfærunum hvíld.

  • Mikilvægt er að bjóða vatn, en í litlu magni í einu
  • Þetta á ekki við um hvolpa og kettlinga, þar sem þeir þola föstu verr

Auðmeltanlegt fóður

Þegar byrjað er að gefa dýrinu aftur að borða er mikilvægt að velja auðmeltanlegt fóður sem er sérstaklega ætlað fyrir viðkvæman maga, til dæmis:

  • Gastrointestinal (Royal Canin)
  • i/d (Hill’s)

Ef eigandi kýs að gefa heimatilbúið fóður má gefa:

  • Soðinn kjúkling (án krydds)
  • Soðin hrísgrjón

Gefið litla skammta í einu og oftar yfir daginn fyrstu dagana.

Aftur yfir á venjulegt fóður

Þegar uppköst og niðurgangur hafa hætt og ekki verið til staðar í 2–3 daga, má færa sig smám saman aftur yfir á venjulegt fóður.

Hvenær á að hafa samband við dýralækni?

Hafið samband við dýralækni ef eitthvað af eftirfarandi á við:

  • Dýrið er hvolpur eða kettlingur
  • Einkenni lagast ekki innan 4–7 daga
  • Uppköst vara lengur en 24 klukkustundir hjá fastandi dýri
  • Blóð sést í uppköstum eða niðurgangi
  • Niðurgangur er mjög dökkur eða svartur
  • Dýrið byrjar ekki að borða eða drekka eðlilega eftir föstu
  • Dýrið er slappt eða í slæmu ástandi
  • Dýrið er með hita (yfir 39,0 °C mælt með endaþarmsmæli)

Aðrar greinar

Eftir Dýralæknastofa Suðurnesja 10. júní 2026
Hundahósti er smitsjúkdómur í öndunarfærum hunda. Hann orsakast af ýmsum sýkingarvöldum, bæði veirum og bakteríum.
Eftir Dýralæknastofa Suðurnesja 10. júní 2026
Upplýsingar um geldingar og ófrjósemisaðgerðir hjá hundum og köttum, aldur, eftirmeðferð og algengar spurningar.
Eftir Dýralæknastofa Suðurnesja 10. júní 2026
Flugeldar og áramót geta verið erfiður tími fyrir mörg gæludýr. Hér eru gagnleg ráð til að draga úr streitu og ótta.