Gæludýr og áramót
Flugeldar og áramót geta verið erfiður tími fyrir mörg gæludýr. Hér eru gagnleg ráð til að draga úr streitu og ótta hjá hundum og köttum á þessum tíma.
Hundar
- Það er eðlilegt að hundar verði hræddir við flugelda. Sumir bregðast fyrst og fremst við hávaðanum, en ljósin geta einnig valdið hræðslu.
- Margir hundar leita í skjól, til dæmis undir húsgögn eða í búrið sitt. Gott getur verið að leyfa hundinum að hafa aðgang að öruggum felustað og jafnvel breiða teppi yfir búrið til að draga úr ljósáreiti.
- Ekki er ráðlagt að fara út með hund, jafnvel þótt hann virðist óhræddur, þegar mestu lætin eru. Hundar geta brugðist ófyrirsjáanlega við, til dæmis elt flugelda eða hlaupið í átt að blysum og tertum.
- Mikilvægt er að fjölskyldumeðlimir haldi ró sinni og láti eins og ekkert óeðlilegt sé að gerast. Forðist að vorkenna hundinum sérstaklega, þar sem það getur styrkt hræðsluhegðun. Einnig á ekki að skamma hundinn fyrir slys sem kunna að verða vegna hræðslu.
- Ekki er ráðlegt að skilja hundinn eftir einan á þessum tíma, sérstaklega ekki ef hann hefur fengið róandi lyf. Ef farið er að heiman getur verið gott að taka hundinn og búrið hans með, eða fá einhvern til að passa hann.
- Sumir hundar geta verið áfram varir um sig í nokkra daga eftir áramótin. Einstaka hundur þorir jafnvel ekki út að gera þarfir sínar tímabundið, en það gengur yfirleitt yfir á nokkrum dögum.
Kettir
- Kettir geta einnig orðið mjög hræddir við flugelda, en þeir eru yfirleitt duglegir að finna sér felustaði.
- Gott er að tryggja að kötturinn hafi aðgang að öruggum felustað, til dæmis búri með teppi yfir eða rólegu herbergi þar sem hann er öruggur. Einnig getur hjálpað að hafa kveikt ljós og jafnvel útvarp eða sjónvarp til að draga úr áhrifum hávaðans.
- Hræðsla getur haft áhrif á matarlyst, og sumir kettir borða lítið eða ekkert í nokkra daga.
- Mælt er með að halda köttum inni yfir áramótin, jafnvel þeim sem eru venjulega óhræddir. Hræðsla getur valdið því að þeir hlaupi í burtu og týnist eða fari sér að voða.
Lyfjameðferð
Til eru lyf sem geta hjálpað dýrum að takast á við áramótin. Við notum oft Alprazolam Mylan, sem hefur bæði róandi og kvíðastillandi áhrif án þess að skerða hreyfigetu dýrsins verulega. Lyfið getur einnig haft áhrif á minnismyndun, sem getur verið gagnlegt til að draga úr neikvæðri upplifun.
- Yfirleitt er gefinn einn skammtur um kvöldmatarleyti.
- Ef þörf krefur má gefa annan skammt síðar um kvöldið, til dæmis um kl. 23.
Mikilvægt:
Ekki má gefa lyfið hundum sem eru með:
- gláku
- vöðvarýrnun
- lifrarsjúkdóma
Lyfjagjöf skal alltaf fara fram í samráði við dýralækni.

