Myndagallerí
Ýmsar valdar myndir úr starfseminni.
INSTAGRAM VEGGURINN OKKAR
-
πΆ Kennel Cough – Hósti í Hundum πΎ Hvað á ég að gera ef hundurinn minn er veikur? Kennel cough (eða smitandi hósti í hundum) er algeng og mjög smitandi öndunarfærasýking. Hún líkist kvefi eða flensu hjá fólki – oftast væg, en getur valdið meiri veikindum í sumum hundum. π Einkenni sem þú ættir að fylgjast með: Þurr og hvass hósti – oft eins og hundurinn sé að kafna Hósti sem versnar við hreyfingu eða áreynslu Slappleiki og minnkuð matarlyst Nefrennsli eða vægur hiti π Ef hundurinn þinn sýnir þessi einkenni: 1. Haltu honum heima Hundurinn ætti ekki að fara á hundasvæði, í pössun, snyrtingu eða hitta aðra hunda. Sýkingin smitast mjög auðveldlega! 2. Hafðu samband við dýralækni Láttu dýralækni meta ástandið og hvort meðferð sé nauðsynleg. Komdu ekki með hundinn á dýralæknastofu nema þú hafir fengið það staðfest. 3. Forðastu snertingu við aðra hunda Kennel cough smitast með úða, beinni snertingu og menguðum hlutum. Passaðu að skálar, leikföng, taumar og beisli séu ekki sameiginleg með öðrum hundum. 4. Fylgstu með bataferlinu Í flestum tilfellum batna hundar sjálfir innan 2–3 vikna. Í sumum tilfellum getur þurft verkjalyf eða hitalækkandi lyf – allt eftir mati dýralæknis. 5. Gefðu hundinum ró og hvíld Hann ætti að hvílast á rólegum og hlýjum stað. Forðastu hávaða og mikla hreyfingu sem getur aukið hóstatíðni. Þegar hann er orðinn einkennalaus má smám saman hefja venjulega rútínu og umgengni við aðra hunda á ný. Sýnum tillitssemi – verndum bæði okkar hunda og aðra! πΎButton
-
Það er ekki til betri leið en að byrja daginn á þessum fallegu berner senner hvolpumπ við óskum eiganda innilega til hamingju með þessa dásamlegu viðbótβ€οΈButton
-
βοΈβοΈβοΈButton
-
Tímabundnar breytingar vegan tímabókana. Starfsfólk Dýralæknastofu Suðurnesja er nú að undirbúa að taka í notkun nýtt afgreiðslukerfi sem m.a. inniheldur sérstakt tímabókunarkerfi. Þetta mun hafa í för með sér að ekki verður lengur notast við Noona fyrir tímabókanir og tekur það gildi nú þegar. Þetta mun þó ekki hafa áhrif á þær bókanir sem þegar hafa verið gerðar. Reiknað er með að nýja afgreiðslukerfið verði tekið í notkun þann 21. maí n.k. og í millitíðinni mun fyrirkomulagið við tímabókanir verða sem hér segir: Bóka tíma í síma 421-0042 á virkum dögum frá kl. 9:00–12:30 og 13:00–16:00 og á laugardögum frá 10:00–13:00. Senda tölvupóst á dskef@dskef.is Senda fyrirspurn í gegnum heimasíðu stofunnar ( www.dskef.is) en þar er að finna almennar upplýsingar um starfsemi stofunnar.Button
-
π₯ βáπ€πππ£ ππππ π₯ ππ ππð π§ππ£ðπ¦π£ ππá π πππ¦π£ á π»ýπ£ππæππππ€π₯π ππ¦ ππ¦ðπ¦π£πππ€ππ πππ₯ππ£πππ£ππππ ππππ: ππ,ππ & ππ.ππ‘π£íπ π° βπóπ₯πð π‘áπ€ππππ π§ππ & ππ¦ππ¦π πð βáπ€πππππππ¦π£ π π πúπππ¦ππðπ ππ£π¦ ππππ πóð ππͺπ£ππ£ πýπ£ππ π ππππ£π #dskef #easter2025Button






































