Legbólga hjá tíkum

Höfundur

Dýralæknastofa Suðurn

Síðast uppfært

10. júní 2026

deildu þessari síðu

Legbólga (e. pyometra) er alvarleg bakteríusýking í legi tíkar og getur verið lífshættulegt ástand ef ekki er brugðist við tímanlega.

Allar tíkur geta fengið legbólgu, en sjúkdómurinn er algengari hjá miðaldra og eldri tíkum. Legbólga kemur oftast fram 2–8 vikum eftir lóðarí. Tíkur sem hafa sögu um óreglulegt lóðarí og/eða gervióléttu eru í aukinni áhættu.

Opin og lokuð legbólga

Legbólga getur verið annað hvort opin eða lokuð, eftir því hvort leghálsinn er opinn eða lokaður.

Opin legbólga:

  • Leghálsinn er opinn og þá sést yfirleitt sýkt útferð frá leggöngum.
  • Tíkin sleikir sig oft meira en venjulega á kynfærum.

Lokuð legbólga:

  • Leghálsinn er lokaður og sýkingin safnast fyrir inni í leginu.
  • Legið getur stækkað verulega og í alvarlegum tilfellum getur það rofnað.
  • Þetta ástand er sérstaklega hættulegt og krefst tafarlausrar meðferðar.

Einkenni legbólgu

Einkenni geta verið mismunandi og tíkur geta sýnt sum eða öll eftirfarandi einkenni:

  • Aukin drykkja og þvaglát
  • Slímug eða graftarkennd útferð frá kynfærum
  • Minnkuð matarlyst
  • Slappleiki og vanlíðan
  • Hiti (yfir 39,2 °C)
  • Þaninn eða aumur kviður
  • Uppköst

Athugið að í sumum tilfellum geta einkenni verið væg eða jafnvel lítt áberandi, sérstaklega við lokaða legbólgu.

Meðferð

Meðferð við legbólgu er yfirleitt skurðaðgerð þar sem leg og eggjastokkar eru fjarlægð. Þetta er bráðaaðgerð sem getur bjargað lífi tíkarinnar.

Því fyrr sem meðferð hefst, þeim mun betri eru batahorfur.

Fyrirbyggjandi aðgerðir

Ófrjósemisaðgerð (að taka tík úr sambandi) kemur í veg fyrir legbólgu.

Að auki dregur ófrjósemisaðgerð verulega úr hættu á júguræxlum, sem eru meðal algengustu æxla í tíkum. Því fyrr sem tík er ófrjósemisaðgerð, þeim mun minni eru líkurnar á að hún fái júguræxli síðar á ævinni.

Aðrar greinar

Eftir Dýralæknastofa Suðurnesja 10. júní 2026
Hundahósti er smitsjúkdómur í öndunarfærum hunda. Hann orsakast af ýmsum sýkingarvöldum, bæði veirum og bakteríum.
Eftir Dýralæknastofa Suðurnesja 10. júní 2026
Upplýsingar um geldingar og ófrjósemisaðgerðir hjá hundum og köttum, aldur, eftirmeðferð og algengar spurningar.
Eftir Dýralæknastofa Suðurnesja 10. júní 2026
Flugeldar og áramót geta verið erfiður tími fyrir mörg gæludýr. Hér eru gagnleg ráð til að draga úr streitu og ótta.