Bráðaveikindi hjá gæludýrum

Höfundur

Dýralæknastofa Suðurnesja

Síðast uppfært

10. júní 2026

deildu þessari síðu

Við tökum á móti bráðveikum og slösuðum dýrum án tafar og hafa þau forgang fram yfir bókaða tíma.

Ef grunur leikur á að dýrið þitt sé alvarlega veikt eða slasað, er mikilvægt að hafa samband við dýralækni eins fljótt og auðið er.

Einkenni og ástand sem krefjast tafarlausrar dýralæknisaðstoðar

Eftirfarandi eru dæmi um ástand sem teljast bráðatilfelli. Listinn er ekki tæmandi:

  • Andnauð eða öndunarerfiðleikar
  • Þvagstífla eða erfiðleikar við þvaglát
  • Miklar eða stjórnlausar blæðingar
  • Yfirlið eða meðvitundarleysi
  • Flog eða krampaköst
  • Grunur um eitrun
  • Alvarlegir áverkar, til dæmis eftir slys eða fall
  • Magasnúningur (uppþemba með vanlíðan, árangurslaus uppköst eða óróleiki)
  • Fæðingarerfiðleikar eða þörf á bráðakeisaraskurði

Ef þú ert í vafa um ástand dýrsins þíns, er alltaf betra að hafa samband við dýralækni og fá ráðleggingar. Skjót viðbrögð geta skipt sköpum fyrir batahorfur.

Aðrar greinar

Eftir Dýralæknastofa Suðurnesja 10. júní 2026
Hundahósti er smitsjúkdómur í öndunarfærum hunda. Hann orsakast af ýmsum sýkingarvöldum, bæði veirum og bakteríum.
Eftir Dýralæknastofa Suðurnesja 10. júní 2026
Upplýsingar um geldingar og ófrjósemisaðgerðir hjá hundum og köttum, aldur, eftirmeðferð og algengar spurningar.
Eftir Dýralæknastofa Suðurnesja 10. júní 2026
Flugeldar og áramót geta verið erfiður tími fyrir mörg gæludýr. Hér eru gagnleg ráð til að draga úr streitu og ótta.